
Skinn þau sem notuð eru í hönnun Ískeldu koma frá Suður-Grænlandi eða nánar tiltekið frá Qaqortoq (Julianehåb á dönsku). Þar var selurinn, sem í þessu tilfelli er hringanóri, veiddur og skinnið verkað að hætti heimamanna. Síðan tók við langt ferðalag, sem endaði farsællega á Húsavík, þar sem skinnið er sniðið og saumað af alúð. Hver hlutur eru einstakur því ef vel er að gáð, má sjá ummerki í leðrinu eftir för dýrsins um ólgusjó, má því segja í fáum orðum að eins er með selinn og okkur mannfólkið að enginn kemst ómarkaður í gegnum lífið.
Fróðlegt er einnig að vita að selskinnið hefur þann einstaka eiginleika að hárin draga í sig hita frá sólinni, og fer vel við daglega notkun.
Selleðrið aftur á móti er verkað og unnið hjá Sjávarleðri á Sauðárkróki.
Gott er að hafa í huga varðandi umhyrðu á flíkum eða fylgihlutum úr selskinni að forðast að leggja skinnið beint á heitan ofn því þá geta hárin brunnið af.
Kær kveðja Elsa Gugga.

