Hugmyndin af hettutreflunum er gömul og á sér langa sögu, upphafið má rekja allt til fyrri hluta síðustu aldar og þá til Grænlands. Peter Freuchen var danskur rithöfundur og landkönnuður er giftist grænlenskri konu og átti með henni dóttur er nefnd var Pipaluk.
Seinni kona Peters var Dagmar Cohn en hún var mikill fatahönnuður þess
tíma. Kona sú ásamt Pipaluk gerðu hettutreflana að tískuvarningi er vakti mikla hrifningu á meðal kvenna og
þá ekki síst fyrir þær sakir að þar fór saman notagildi og þægindi., voru þeir kallaðir "pipaluk" eftir
hönnuðinum.
Urðu þeir mjög vinsælir í Danmörk og þá
ekki síður hér á Íslandi í kringum
1940.
Með þessa hugmynd að leiðarljósi fór ég á stað með saum á hettutreflunum, mér er ekki kunnugt hvaða efni voru notuð á þeim tíma eða hvernig sniðið nákvæmlega var, en samt sem áður er ég sátt við útkomuna. Með því að blanda saman hinum ýmsum efnum þá fæst fram fjölbreytileiki í útliti og áferð. Hægt er að sjá hluta af hönnun hettutreflanna í vörum. Sjón er sögu ríkari.
Kær kveðja, Elsa Gugga.

