Almennt - sunnudagur 22.nóvember 2009 - Elsa Guðbjörg Borgarsdóttir - Lestrar 63
Góðan daginn allir sem þetta lesa!
Ég ætla að byrja á því að þakka kvennfélagskonum á Húsavík fyrir góða kvöldstund og ljúffengar veitingar, en ég fékk að njóta samveru þeirra á síðasta föstudagskvöld og sýna þeim og kynna það sem Ískelda hefur fram að bjóða fyrir þessi jól. Á laugardeginum tók ég þá ákvörðun að hafa lokað þann daginn og eyða deginum með fjölskyldunni í Mývatnssveit í návist jólasveinanna í Dimmuborgum, þetta var ómetanleg stund sem við áttum öll saman þarna. Það fékk mann til að hugsa um hvað það er sem jólin snúast fyrst og fremst um"fjölskylduna" Verið nú góð við hvert annað og njótið þess að vera til!!

Með kveðju frá Ískeldu ,Elsa Gugga.