Ískelda

Haustið á næsta leyti og.... ...mærudögum löngu lokið þetta árið :=)  Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt, ef vel ætti að vera þá þyrfti að fjölga

Haustið á næsta leyti og....

...mærudögum löngu lokið þetta árið :=)  Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt, ef vel ætti að vera þá þyrfti að fjölga heldur betur tímunum í sólarhringnum svo að ég kæmi öllu í verk sem
ég ætlaði mér.  En stefnan er sett á að frá og með þessum degi verður þessi síða reglulega uppfærð með fréttum og myndum af því sem Ískelda hefur fram að bjóða.  Annars hefur sumarið verið með ágætum, að vísu hefði ég viljað sjá fleiri ferðamenn sem hættu sér fyrir hornið á Bjarnahúsi og séð hvað við höfum hér fram að bjóða.  Fyrir ykkur sem ekki þekkið til staðhátta hér á Húsavík þá er smá beygja við svokallað Bjarnahús sem veldur því að við sem erum þar staðsett erum ekki sjáanleg frá því svæði sem mesta öngþveitið myndast yfir sumartímann.  En af öllu má læra og gera betur, það eina sem gildir í þeim málunum er að vinna betur heimavinnuna sína nú vetur og menn vinni saman að þvi að markaðssetja okkar fallega bæ í heild sinni!!

Með kveðju frá Ískeldu
Elsa Gugga



Mynd augnabliksins

321.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7855

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf