Ískelda

Fróðleikur um roðið sem Ískelda notar við hönnun sína.   Sjávarleður vinnur nú eitt fyrirtækja í Evrópu að sútun fiskroðs með þeim aðferðum sem þar eru

Fróðleikur um roðið sem Ískelda notar við hönnun sína.

 

Sjávarleður vinnur nú eitt fyrirtækja í Evrópu að sútun fiskroðs með þeim aðferðum sem þar eru notaðar.

Eru vörur félagsins  seldar um heim allan. Stærsti vöruflokkur félagsins er sútað fiskroð sem selt er til framleiðslu fatnaðar, skóbúnaðar og fylgihluta og hefur sjávarleðrið verið eftirsótt gæðavara. Þróun í litun og verkun hefur gert vöruna að ákjósanlegu hráefni í síbreytilegu framleiðsluumhverfi.

Vörur Sjávarleðurs eiga vaxandi velgengni að fagna sem hráefni í handverksvörur, fatnað, töskur, belti og skó, þar sem reynir á gæði vörunnar, sveigjanleika og úrval í framleiðslulínum samhliða metnaðarfullri þjónustu við viðskiptavini.

Meðal þeirra fyrirtækja sem framleiða úr vörum frá Sjávarleðri má nefna Nike og Ecco, þar fyrir utan hafa fræg tískuhús eins og Christian Dior, Prada og John Galliano notað roð frá Sjávarleðri í hönnun sína. 

Hér á öldum áður tíðkaðist á vestfjörðum að notað væri roð, og þá einna helst sútað steinbítsroð við gerð skóbúnaðar, voru það svokallaðir roðskór. Algengast var að prjóna illeppa sem innlegg í skóna.  Þetta var afbragðs fótabúnaður í frosti og snjó. Roðskór voru léttir á fæti, urðu aldrei illharðir, féllu þeir svo vel að fætinum að ekki fór ofan í þá snjór.  Voru þeir því sjálfsagðir útiskór að vetrinum.

Ég er hrædd um að fólk í dag léti ekki bjóða sér slíkan skóbúnað!

kveðja Elsa Gugga

 



Mynd augnabliksins

317.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7855

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf