Ískelda

gallerí, ískelda, Húsavík, ull, skinn, hönnun, framleiði, hanna, Elsa, Grænland, roð,

Velkomin í Ískeldu, Husavik design

Ískelda - Husavik design er staðsett að Garðarsbraut 17 á Húsavík.

Opið í sumar sem hér segir

Mán-föstud.frá kl 10-17

Laugardaga frá kl. 11-14


Ath. Hafa má samband í síma 893-0472

ef óskað er eftir afgreiðslu á lokunartíma.

 


Eigandi og hönnuður er Elsa Guðbjörg Borgarsdóttir.  Markmið Ískeldu er að bjóða fram einstaka hönnun þar sem nostrað er við hverja flík og hvern fylgihlut fyrir sig.  Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð þar sem notast er að mestu við náttúruleg efni, svo sem ull, bómull, bambus, silki, skinn, leður, roð ofl.  Upplýsingar um flíkina eða fylgihlut fæst með því að smella á viðkomandi mynd.

Peysur og kjólar sem unnir eru úr fínofinni íslenskri ull eru fáanlegar í stærðum 36-46. 

Elsa er vestfirðingur að ætt og uppruna og þangað sækir hún nafnið á galleríinu. Amma hennar og afi bjuggu að Keldu í Mjóafirði við ísafjarðardjúp. Bærinn hét upphaflega Jökulkelda  (jökull=ís) en var síðar stytt í Keldu.  Elsa er dóttir hjónanna Borgars Halldórssonar sem lengi var stýrimaður á Fagranesinu og Kristínar Ólafsdóttur, en þau eru bæði látin.  Elsa er gift Ásgeiri Hólm Agnarssyni og eiga þau til samans 6 börn, eru þau öll búsett í sátt og samlyndi á Húsavík ásamt hundinum Herkúles sem er svartur labrador af góðum ættum.

.

Hægt er að hafa samband í síma 893-0472, senda fyrirspurn eða senda netpóst til iskeldu@simnet.is eða iskelda@iskelda.is

Að sjálfsögðu eru vörur Ískeldu sendar hvert á land sem er, leggst þá við sendingarkosnaður.  Hægt er að greiða með bankamillifærslu eða símgreiðslu (kredidkort).

Með kærri kveðju Elsa Gugga.

 

Fréttir

Mæra..mæra....mærudagar...

...nú fara snilldar mærudögum senn að ljúka.  Veðrið var einu orði meiriháttar, sól, hiti og gríðalegur mannfjöldi sem ákvað að eyða helginni í okkar fallega bæ.  Tók siða ´þá ákvörðun að vera með hluta af  hönnun Ískeldu niðri á hafnarstétt eftir hádegi á laugardeginum í góðum félagsskap Helgu Bjargar,Önnu Brynjars og Haffa Haff, en prinsinn sjálfur kom hinað til að skemmta um helgina.  Var hann mjög ánægður með dvölina hér og er virkilega spenntur að koma aftur og þá með stórt gigg (eins og hann orðaði það)  Virkilega skemmtilegur strákur sem vakti athyggli fyrir það hversu vel hann kom fyrir og gaf sér tíma fyrir aðdáendur sína stóra sem smáa!!  Nú er sunnudagur, hitinn um 20 stig og heiðskýrt.  Deginum á að eyða í afslöppun og njóta þess að vera með fjölskyldunni, skreppa vonandi aðeins út á fljóann og anda að sér sjáfarilminum.

Með kveðju Elsa Gugga


Litagleði...

...eins og flestir hafa tekið eftir þá erum við Helga og Steini bakari búin að mála hjá okkur í glaðlegum litum. Steini hefur nú gert þetta áður en við Helga ákváðum eftir góða ábendingu frá ágætum aðila að mála hjá okkur með lengri tíma í huga (ekki bara Mærudaga) með það í huga þá valdi ég heitan skapandi lit sem sjá má víða ínni í Ískeldu og Helga sinn fallega græna lit.  Við vonumt til  að Steini verði áfram í litagleðinni hvort sem hann heldur þeim lit sem er nú þegar eða breyti eftir Mærudaga.    Tilgangurinn með þessu uppátæki okkar er fyrst og femst að draga athyggli að þeim verslunum sem eru hinum megin við Bjarnahús!!
kv. Elsa









Mærudagar 2010

Mærudagar 2010 eru alveg að renna í hlað og framtíðarspáin á norsku veðurstöðinni er eins góð og hugsast getur, sól og sæla.  Opnunrtími í 'Iskeldu þessa daga verður eftir þörfum, en klárlega eins og auglýst er á forsíðu.  Þar fyrir utan þá verð ég með á markaðnum niðri á stétt á laugardeginum og væntanlega með í för einn mesta (freakaðasta) umdeilasta aðila landsins!!!  Þetta verður sko bara gaman, sól og sumar!!!!!!!!  kv. Elsa



Hrafnarnir fara á flug á morgun þar sem oft leynist gull í grjóti! Sjá í gallerí Ískeldu Garðarsbraut!


Mynd augnabliksins

juli_toskur_004.jpg

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 5415

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf